12.3.2008 | 22:53
Skortur á hugmyndum !!!
Það virðist vera að það komi svona vikur og vikur sem maður er gersamlega hugmyndasnauður og hálf þroskaheftur í hugsun. Er þá tíminn endalaust fljótur að líða og maður einhvernvegin missir tengingu við núið. Ég held að maður geti farið í þetta hugarástand við hvaða aðstæður sem er, maður einhvernvegin gleymir að lifa og dagarnir bara hverfa. Maður fær engar góðar hugmyndir og hvað þá að koma þeim á blað eða í verk.
Eins og ég sagði áðan getur maður lent í þessu við allar aðstæður. Sorg, gleði, annríki og þegar er ekkert er að gera. Hvað getur maður gert í þessu. Er eitthvað svar við þessu eða er þetta bara eitt af þeim vandamálum sem eltir okkur öll. Eins og Hugh Laurie orðaði það svo snilldarlega "All we got to do is ( )" það er nefnilega ekki lausn á öllum vandamálum.
Fyrir nokkrum árum var ég ekki alveg á þeim stað sem ég helst óskaði og leið ekki vel. Ómældur tími fór í að gera akkúrat ekki neitt. Hugsa ekki neitt og láta mér leiðast. Ég veit ekki hversu miklum tíma ef mínu dýrmæta lífi fór í að fá engar hugmyndir. Já engar hugmyndir um hvað ég átti af mér að gera eða um hvernig ég gæti breytt ástandinu.
Nú eru aðrir tímar og gæti ég ekki verið hamingjusamari með lífið. Mikið að gera og hlutir að ganga upp sem hafa ekki verið að ganga upp áður. En samt þegar ég vill fá hugmyndir, kemur engin.
En kannski þegar ég skoða málið betur þá er eins og ef maður situr bara og hugsar:ég vill fá hugmynd, ég vill fá hugmynd. Þá er það ekki líklegt til árangurs. Er ekki bara málið að byrja á hlutunum og þá koma hugmyndirnar. Til marks um þetta má líta á þessa færslu, hafði ENGA hugmynd um hvað ég ætlaði að skrifa en úr varð bara ágætis færsla
góðar stundir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.2.2008 | 22:32
Tilboð á dauðanum !!??
Heyrði auglýsingu í gærmorgun sem vakti athygli mína. Eiginlega á þann hátt að ég skellti uppúr. En á sama tíma var ég svolítið hissa. Ég hef aldrei heyrt samskonar auglýsingu. Ég kannski er bara með eitthvað skrítinn húmor og engum öðrum finnst þetta ekki eins fyndið. Ég drita þessu samt sem áður hingað inn.
Jú maður heyrir auglýsingar á hverjum degi. Með boðunum gulli betri og fólk á það til að rjúka af stað og kaupa eitthvað sem það vantar. Sumar vörur eru náttúrulega þess eðlis að manni kannski vantar þær ekki strax en ákveður að vera framsýnn og tryggir sér vöruna á tilboði. Jú það má segja að þetta eigi við um þessa ákveðnu vöru en að mínu mati fellur hún kannski ekki í sama flokk og aðrar.
Ég fór að velta fyrir mér eftir að ég heyrði þetta að það væri kannski eitthvað meira á bakvið, eitthvað sem má alls ekki koma fram. Ég átta mig fullkomlega á því að kenning mín er langsótt og á sér sennilega ekki neina stoð í raunveruleikanum. En svoleiðis er ég bara.
Auglýstir voru legsteinar á tilboði. Hmm, hvað!!??. Jújú legsteinar á tilboðsverði þannig að nú er um að gera fyrir fólk sem, tja skulum segja er svona að pakka niður fyrir það sem bíður hinumegin. Að koma sér í það að að versla sér legstein og getur haft hann virkilega flottan með minni tilkostnaði.
Síðan stóð ég mig að því að hugsa þetta lengra. Nú þeir sem fylgjast með umræðunni eiga nú að vita það að eitt af helstu áhyggjumálum Reykjavíkurborgar er húsnæðismál aldraðra. Kannski eru þetta leynileg skilaboð frá borgarstjórn sem felast í því að notast við ,,lögmál aðdráttaraflsins"(The secret). Jú eins og allir þeir sem hafa kynnt sér The Secret vita það að þú þarft ekki nema að senda ákveðna hugsun til umheimsins og hún mun rætast. Segjum sem svo að aldrað fólk sem heyrir þessa auglýsingu hugsar með sér að nú væri kannski besti tíminn til að fara yfir móðuna miklu til að spara smá pening fyrir ættingjana í legsteinakaupum. Þetta fólk hefur kannski kynnt sér The Secret og veit að það þarf ekki nema að hugsa:
Kannski er best að fara bara núna. (eða eitthvað á þá leið)
Pláss losnar á heimilinu og fjölskyldur sem eru í vandræðum vegna húsnæðisleysis aldraðra geta tekið gleði sína á ný.
p.s. ákvað að gera textan meira svona ,,station" svo áhugaverðara sé að lesa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.2.2008 | 20:30
Myndasafn!! framhald
Já ég vill byrja á því að Þakka fyrir hlýjar móttökur inn í bloggheima.
Svo vil ég halda áfram að ræða(eða sem sumir vilja kalla nöldur) myndasafnsmálið. Nú þar sem ég fékk nokkuð vel mælt svokallað comment á síðustu grein þá sá ég mig knúinn til að bæta við nokkrum orðum mér til stuðnings.
Að sjálfsögðu átti ég ekki bara við um þennan einstaka atburð. Sem jú var greinilega það merkilegur að blaðið sá sér ástæðu til að skrifa um hann. Á blaðið því að sýna ástæðuna með mynd. Finnst mér.
þessu enn frekar til stuðnings:
Segjum sem svo að Bangsi Litli hafi samband við t.d. Séð og heyrt og segir skilmerkilega frá því að hann ætli nú í eitt svakalegasta heilsuátak sem sögur fara af og vill að blaðið fjalli um það. Hann fær því heim til sín starfsmann blaðsins sem tekur af honum mynd. Birtir þessa fínu grein í blaðinu og þessa svokölluðu ,,fyrir"mynd.
Nú nú nokkru seinna. Eftir sirka svona marga mánuði hefur Bangsi samband aftur og hefur jú líka staðið sig svona svakalega vel og kominn með sixpack og silkimjúkan, glansandi feld. Bangsi er yfir sig spenntur og segir blaðamanninum söguna alla. Bangsi getur ekki beðið eftir sendingunni þegar hann á von á blaðinu, beint úr prentun og rífur pakkninguna og leitar að greininni. Honum til skelfingar var fréttamaðurinn svo latur að hann nennti ekki að sækja myndavélina út í bíl, sem hann hafi gleymt eftir seinni heimsóknina til Bangsa. Setti því mynd úr MYNDASAFNI þar sem Bangsi var feitur og vansæll með ljótan feld. Hann brast í grát og fór beint inn til sín, náði í ís í frysti og lagðist upp í sófa. Með tárin í augunum að horfa á Dr. Phil
Enginn veit hvað gerðist eftir þetta. Hvort Bangsi Litli hafi náð sér. Ég trúi því ekki Ársæll að þú sést það illa innrættur að þú viljir halda þessari MYNDASAFNS stefnu áfram.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
1.2.2008 | 17:06
Úr mydnasafni !!!!
hef rekist á það að undanförnu að það er mikið af fréttum sem skýra út ákveðin atburð eða tíðndi og meðfylgjandi mynd er úr MYNDASAFNI...........Hvað hefur orðið um hið margrómaða ,,myndir segja meira en þúsund orð". Þær segja jú meira en þúsund orð en þau orð eru hinsvegar ósönn.
Ég rakst á eina slíka á BB.is. Þar er verið að greina frá mikilli ófærð innanbæjar vegna snjókomu. Meðfylgjandi er mynd (úr myndasafni) af gröfu að moka snjó, jú eins og gerist í flestum tilfellum þegar um slíkt er að ræða. En fyrir þá sem ekki eru á Ísafirði segir myndin ekki nema hálfa söguna.
Ég geri mér grein fyrir því að ekki er alltaf hægt að byrta mynd af tilteknum atburð sem gerist t.d. í öðrum landshluta eða öðrum heimshluta. En ég geri mér enga grein fyrir hvað er erfitt fyrir fréttamann að skella sér í útiskó, jafnvel úlpu, taka myndavél og fá sér einn heilsubætandi göngutúr til að virða fyrir sér snjóþungan og ná nokkrum góðum myndum. Koma síðan til baka, ferskur og allur léttari sem skilar síðan betri og ferskari grein fyrir vikið.
Það er kanski svo agalega mikiða að gera hjá umræddu blaði að ekki gefst tími fyrir slíkt. Eða kanski tímir rekstarstjóri blaðsins ekki að senda starfsmenn í göngutúr á launum.
Þessi færlsa er ekki ætluð til að móðga neinn eða beina spjótum að umræddu blaði, heldur aðeins vangaveltur höfundar. Og já þetta er nú kanski afskaplega ómerkilegt og ekki krassandi. En eru blogg það yfirleitt
Já fínt já sæll
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.1.2008 | 22:40
janúar !!!!!!!
Afhverju var enginn búinn að segja mér það.....ég er að tala hér enn um sumar og sól og og það er bara búinn janúar og óggggggéðslega eða ógéééééééðslega kalt úti maður.....eigum við að ræða það eitthvað.
Já vá eitthvað og sitthvað hefur nú gerst síðan ég dritaði inn hér skilaboðum síðast og heimurinn mögulega breyst hjá mörum. Sumir hafa orðið ríkir, aðrir fátækir. Sumir óléttir aðrir léttir. Sumir veikir en aðrir geðveikir.
En þess má geta að ekkert af þessu fyrir ofan á við um mig. Ég er enn í skólanum og hef nú bara komið sjálfum mér að óvörum með framúrskarandi árangri. Ja eða svona nánast. Ein önn búinn af nokkrum og hlakkar mig til mjög að takast á við framhaldið. En það sem ég hef nú sýnt mestan árangur í er borðtennis........sem er nauðsynlegur þáttur námsins.
Áramótaheitin voru nokkur og er ég nú farinn að vinna að þeim nokkrum. Allt svona langtíma markmið sko, tekur allt sinn tíma. Árangurinn fer vonandi að sýna sig með vorinu.
En allavegana er ég að vinna í því að egna það áramótaheit að blogga meira..........ekki eins og menn hafi verið að kvarta.....bara svona minnast á :)
En kveð í bili.......já fínt já sæll
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.6.2007 | 18:51
Ég trúiiiiiiii!!
Já á þessum geðsjúku sumardögum er ekki annað hægt en að trú á íslenskt sumar í allri sinni dýrð, vá hvað er auðvelt að vera í góðu skapi þessa dagana, skemmtilegt að sjá fólk úti í góðu skapi og ýmist setið eða labbað um í veðurblýðunni. Ég skrapp suður um helgina og átti þar verulega skemmtilegan dag með vinum og kunningjum sem voru saman komnir til að steggja Ársæl Níelsson. þessi dagur heppnaðist með eindæmum vel og fengum við frábært veður.Sjóstöng, upptaka í Gimsteini, einleikur í Loftkastalanum var meðal þess sem kallinn var látinn ganga í gegn um á þessum merkilega degi. Já eftir að hann var vakinn, látinn klæða sig í skjaldbökubúning og sendur með flugi suður. Og eins og annað vissi hann náttúrulega ekki að þetta yrði haldið fyrir sunnan :)
síðan var endað á djammi í bænum og er þetta í fyrsta skipti sem ég fer á djammið í RVK síðan reykingar voru neiddar út á stétt.....og já ansi sérstakt......en án efa, minni höfuðverkur að morgni !! og engin svitalykt á stöðunum eins og fólk var farið að hræðast. ég kom heim um 6 leitið, sem gerir þetta um 20 tíma drykkju úthald, sem verður að teljast nokkuð gott :)
En.........það dugar skammt þegar að næstu viku kemur. Reyndar hugsa með mér að taka kanski einn eða tvo daga í þannig úthald. þetta byrjar með flugi til CPH á föstudaginn næsta, stoppað í tvær nætur þar. lest verður síðan tekin frá Köben til Hróaskeldu á Sunnudagsmorgun og fundið eitthvað gott tjaldsvæði. þá tekur við 4 daga viðvera á tjaldsvæðinu, þar sem má finna allskyns afþreiingu og nóg um að vera fram á fimmtudag. þá tekur við þessi fína tónlistarveisla í 4 daga. þar sem meðal annara spila Muse, Björk, Red hot chilli peppers, Arcade fire, Mika, Queens of the stone age, beastie boys og The who !!!!!....í það heila yfir 150 hljómsveitir.
já þetta verður gaman, þetta verður stuð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.6.2007 | 18:15
það styttist
já það er orðið langt síðan ég kíkti hérna inn því mikið hefur verið um útiveru hjá mér og er það vegna þess að ég er að nýta daginn áður en henn tekur að stytta. já það eru sumarsólstöður á morgun og fer þá daginn að stytta eftir það. Og já það er fleira sem styttist, vinnuvikan er orðin verulega stutt hjá mér þessa dagana því ekki er um neina yfirvinnu að ræða og er því bara dagvinna, bara 8 tímar á dag í stað 10.
og já það styttist í það að ég fari að yfirgefa ísafjörð og mína holu hér í sundstrætinu því á haustmánuðum mun ég flytjast suður, til heitari staða og framandi landa. já ég mun njóta sólar og hita fleiri daga á ári en ég hef hér vanist, þar er gróður eins og hvergi þekkist og get ég á götum úti heyrt listamenn spila og fugla syngja. Og hlýir vindar leika um mig sem mjúkt silki og fáklæddara meyjar dansa, nótt sem nýtann dag..........kanski farinn aðeins framúr mér þarna, ég er nú bara að fara að flytja til Reykjavíkur. oh well, hitt verður bara að koma seinna.
herru já.....og síðast en ekki síst þá styttist í útilegu. já enga venjulega útilegu. þessi útilega einkennist af múg og margmenni sem er saman komið til að skemmta sér undir berum himni, njóta tóna þekktra listamanna og dansa fram á nótt....já þessi hátið er árleg, ja þessi hátíð er sú besta, já merki hennar er appelsíugult risa-tjald.....já þessi hátíð er hróaskelda. lagt verður í hann föstudaginn 29 júní og verðum við þar til 10. júlí.. gaman verður það.
ég er ekki frá því að manni sé farið að hlakka soldið til. hef farið áður og er að fara aftur :) og efast stólega um að þetta verði eitthvað leiðinlegt.
þangað til seinna......það styttist
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.6.2007 | 08:13
ch ch ch ch changes
golf, fjallgöngur, skokk, hjólreiðar og ræktin. Allt í einum pakka, ég fer ekki út úr húsi núna án þess að vera að fara eitthvað að svitna, púla eða njóta náttúrunnar á sínum fegurstu stundum. Ég hef ef lítið látið sjá mig á skemmtistöðum bæjarins undanfarið og tel ég það nú ekki vera varanlegt ástand, aðeins tímabundið, svo hvíðið engu.
Ég er með djöful ínnan í mér, djöful sem er að sjá um allar þær breytingar sem hafa orðið, sjáið til dæmis klukkuna núna, 07:50. það er fokking laugardagur og ég er ekki að fara að vinna, nei !! ég er að fara í golf. Já fólk, sá sem var fyrir nokkrum vikum helst sofandi á þessum tíma eða í dái vegna áfengisneyslu er vaknaður og kominn á ról. þetta er ekki það eina. á síðasta laugardag lét hann mig fara út í Bolungarvík og hlaupa til baka, reyndar svaraði því einhver að hann skildi það betur að ég hafi hlaupið frá Bol til ísafjarðar heldur en í hina áttina, eitthvað um það að það væri skiljanlegra að flýja Bolungarvík, skil ekki alveg hvað hann var að meina, Bolungarvík hefur alið af sér margan góðan manninn
og er góður staður til að vera á.
hei og já !!!!! hann, sem sagt djöfullinn(sumir hafa kallað þennan djöful íþróttaálfinn) hann lét mig hætta að reykja. Ímyndið ykkur, hann sýnir enga miskun, eg sem átti svo auðvelt með að bara fara út, fá mér eina og fannst það gott, já gott. en nei, ekki lengur, löngunin farin, og eithvað íþóttadrasl komið í staðinn. svindl !!!!
jæja hverjir ætla í óshlíðarhlaupið, 21 km (dugar ekkert minna )
kv. íþróttaálfur, álfur, lfur, fur, ur, rr. hhhhha
P.S, þeir sem fatta brandaran neðst eiga hrós skilið, látið mig vita 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
31.5.2007 | 23:20
rómantísk máltíð og froskar
Rakst á tvær mjög skemmtiegar greinar í dag í blöðunum.
Önnur var í bændablaðinu og var það um ansi skrítna söngkeppni. margt skrítið hefur maður nú séð sem er kallað söng eða sönvakeppni og ber þar helst að nefna eurovision og Idol. En mér fannst þessi skara framúr í frumleika og viðleitni. Hún er haldin í evrópu og á mörgum stöðum, sama keppnin. en að sjálfsögðu eru íslendingar ekki með í þessari keppni því ekki er mikið um froska hér á landi. Já ég sagði froska, þið vitið þessir litlu grænu sem hoppa !!! já málið er að það er haldin svokölluð ,,söngkeppni" froska. Þá ferðast hópur af fólki á milli staða, hlustar á froskasöng á góðviðrisdögum og metur í hvaða landi froskarnir syngja best. Og uppi stóðu sem sigurvegarar Svíþjóð, hef grun um að froskarnir hafi sönlglað stolið Abba lag í nýjum búningi.
Hin fréttin var ekki síður skemmtileg og snéri það einnig að því hvað mannshugurinn getur nú verið skrítinn. Þessi frétt var í Blaðinu. það virðist sem þýskur maður hafi verið orðinn svolítið þreittur á hvað sambílissnót hans hugsaði vel um hamsturinn sinn, eða var það naggrís, jæja skiptir ekki svo miklu fyrir framhaldið. já eina stjörnubjarta kvöldstund ákvað hann að útbúa rómantíska máltíð fyrir spússu sína og var hann tilbúinn með hana þegar hún kom heim, þau snæddu saman og allt var gott. Siðan stóð snótin upp og ætlaði, sem og oft áður að huga að dýrinu, en brá í brún þegar hún sá að það var horfið. Hún spyr sinn heittelskaða hvað hafi orðið um dýrið og tjáði hann henni að þau hafi verið að enda við að borða hann með bestu list. Og eins og þið vitið hafa fþjóverjar engan húmor þannig að þetta var alveg satt. Hann tók dyrið og sauð það í mauk og bar fram með meðlæti.
langaði bara að deila þessu með ykkur 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.5.2007 | 23:21
Þvottabjörn
Loks er ég sestur fyrir framan þessa aldagömlu Toshiba tölvu og gef mér tíma í að blogga. ekki verið mikið um það undanfarið. helgin sem leið, leið hjá án þess að nokkur tæki eftir, já þó það væri þanna einn dagur auka fyrir okkur flest. það var loks að veðrið fór að líkjast vorveðri, þó það sé langt komið fram á sumar.jæja kanski ekki langt, en eitthvað.
þrátt fyrir að helgin hafi liðið fljótt hjá náði maður að afreka heilmikið, nú svosem eins og að fara nokkrum sinnum í sturtu, klippa táneglur, já og svo mætti lengi telja. en helst til tíðinda bar þó að Lindsei lóhann(já, hún sagði að ég mætti skrifa nafnið hennar svona), vinkona mín er enn og aftur á leið í meðferð. Og þykir mér þetta sláandi fréttir. Og til virðingar við hana þá ákvað ég að hafa þetta algerlega edrú helgi, og notaði það tækifæri til að athuga gaumgæfilega hvernig líf það fólk á sem sést ekki t.d. í Krúsinni krúttlegu eða hinum margrómaða stað Langa Manga. jú og viti menn ég bara komst að því að þetta er ekkert svo slæmt og ekkert svo leiðinlegt líf, fínt að vakna á morgnanna, ekki þunnur og ekki á leið í vinnu, að vísu ætlaði ég að vakna bara á svipuðum tíma og á virkum dögum en eitthvað var líkamsnefndin á móti því. gengur bara betur næst.
Góður þessi harðfiskur frá Hnífsdal maður.
Eg hef lagt það í vana minn vegna mikils söknuðar á gamla góða skíðasvæðinu á Seljarlandsdal að labba þar uppá topp og skíða niður. svona rétt við gilið gamla góða. hef gert þetta einu sinni til tvisvar á ári undanfarin ár og er þetta með eindæmum hressandi og skemmtilegt. við Haukur, ferðalangur og minn frændi fórum í gær og drösluðumst þar upp, einstaklega þungt færi var og reyndi ferðin niður eginlega meira á lappirnar en ferðin upp, og síðan var annað sem setti smá strik í reikninginn þegar niður var komið og líða fór á daginn. málið var að það var nu ekki sól og ég sá þessvegna ekki ástæðu til að vera að bera á mig vörn, en kanski hefði átt að gera það. því nú er ég að berjast með öllum þekktum ráðum og Aloa vera að ná framan úr mér þvottabjarnarlúkkinu sem að mér skilst sé ekkert svaka mikið ,,inn" í dag. Og já, svo náttúrulega fylgikvillar sem mátti svosem búast við. ég er bara ekki hissa að maður haldi að klósett séu framleidd af sadistum þegar maður er með harðsperrur aftan á lærumum og rassinum.
Þegar maður sinnir svoleiðis erindum í svona miklum sársauka hugsar maður: afhveru í andskotanum datt ég ekki bara íða og hefði þá kanski sleppt þessari vitleysu.
góðar stundir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Örnólfur Þórir Örnólfsson
Bloggvinir
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 4637
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


polli
lindape
101isafjordur
majabet
rocksock